Hrós til Sýnar og RÚV
Við körfuboltamenn eigum það til að kvarta (eins og fleiri) þegar okkur finnst fjölmiðlar ekki greina nógu vel frá gangi mála í okkar íþrótt. Stundum er sú gagnrýni réttmæt (að okkar mati), en stundum byggir hún á óraunsæum væntingum. Heimasíðan hefur stundum slegist í hóp nöldurseggja og gagnrýnt fjölmiðla, aðallega þó tvo. Moggann fyrir að gera körfunni aldrei jafn hátt undir höfði og handboltanum, og DV fyrir allt aðra hluti, hluti sem lúta að virðingu fyrir fólki og mannorði þess, eins og menn muna kannski.
En við þurfum að vera sanngjörn í okkar gagnrýni og umfjöllum um fjölmiðla. Þess vegna vill Heimasíðan bera lof á Sýn og RÚV, svona rétt í lok leiktíðar. RÚV á heiður skilið fyrir frábæra umfjöllun (Körfuboltakvöld) um Evrópukeppnina, en sú umfjöllun jók mjög á allt umtal í kringum okkar þátttöku í Bikarkeppni Evrópu. Frammistaða Keflvíkinga var afar góð og það sama má segja um RÚV. Hafi þeir bestu þakkir fyrir.
Sömu sögu má segja um Sýn og úrslitakeppnina. Þeir sýndu marga leiki beint og til allrar lukku sáum við körfuboltamenn þeim fyrir frábæru sjónvarpsefni, í flestum tilfellum. Þeir sýndu verkefninu einnig mikla virðingu og voru yfirleitt með gestaþul, sem var körfuboltaspesíalisti, og auk þess voru þeir með þriðja manninn kláran til að taka viðtöl þegar færi gáfust. Í alla staði voru útsendingar þeirra faglega unnar og vel heppnaðar og viljum við þakka fyrir það.