Fréttir

Körfubolti | 28. janúar 2003

Hugað að bikarúrslitunum

Laugardagurinn 8. febrúar gæti orðið stór dagur í sögu körfunnar í Keflavík. Við eigum tvö lið í úrslitum Bikarkeppni KKÍ & Doritos og ágæta möguleika á því að koma heim með bikar eða jafnvel bikara, þó auðvitað sé akkúrat ekkert öruggt í þeim málum.

Sú staða hefur komið upp að hlé verður milli leikjanna, kvennaleikurinn hefst kl. 13 og karlaleikurinn hefst kl. 16.30. Þetta er gert að ósk sjónvarpsins sem á rétt á að sýna leikina beint.

 

Tímasetningin er ekki sú heppilegasta fyrir keflvíska áhorfendur, en við erum þess samt fullviss að þeir mæti á báða leikina og finni sér eitthvað skemmtilegt að gera í millitíðinni. Kannski verður boðið upp á skemmtun í Höllinni, það skýrist brátt.

Miðaverð verður 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Miðinn mun gilda á báða leikina. Forsala verður í Keflavík og hefst hún næsta mánudag. Í forsölu gefst fólki kostur á að kaupa miðana ódýrara, á 800 og 400 kr. Boðið verður upp á sætaferðir á leikina, meira verður sagt um það síðar.

Látum þetta duga til að byrja með, en við munum reyna að birta nýjar Bikarfréttir næstu dagana, enda stórviðburður framundan.