Fréttir

Körfubolti | 9. apríl 2004

Húsið opnar kl. 15.00

Gera má ráð fyrir að mikill fjöldi mæti í Sláturhúsið við Sunnubraut á mogun. Mikið verður um dýrðir enda er þetta síðasti heimaleikurinn í leiktíðinni, sama hver úrslit verða.

Miðasala mun hefjast um kl. 14.00 en húsið verður opnað kl. 15.00. Fljótlega mun Hraðlestarhljómsveitin "Safnaðarfundur eftir messu" taka gólfið og kynda undir stemmningunni í húsinu. Frést hefur að þeir hafi lagt sig fram við að leika Keflavíkurlagið með tilþrifum.

Áður en leikur hefst mun kvennaliðið verða heiðrað af íþróttaráði Reykjanesbæjar sem úthlutar körfuknattleiksdeildinni afreksstyrk vegna Íslandsmeistaratitils þeirra.

Kynningin verður kraftmikil og í leikhléi og kannski oftar munu ungar stúlkur úr fimleikadeild Keflavíkur sýna gestum listir sýnar.

Leikurinn hefst síðan kl. 16.00 og getur verið hyggilegt fyrir áhorfendur að mæta snemma til að tryggja sér góð sæti. Settar hafa verið upp sætaraðir og stæði fyrir aftan körfurnar báðu megin svo koma megi fleiri áhorfendum fyrir með góðu móti.