Merkilegt nokk, í nokkra daga hefur verið rætt um að Haukar hafi fengið til sín nýjan Kana. Hann lék þó ekki með á móti KFÍ á dögunum en óstaðfestar heimildir herma að hann heiti Whitney Robinson og að hann komi frá Central Michigan háskólanum, líkt og hinn Haukakaninn, Mike Manciel. En heimasíða Hauka hefur þagað þunnu hljóði um þennan mann og ekki hefur hann enn birst á lista KKÍ yfir félagaskipti. Kannski að allir pappírar séu ekki komnir í lag eða þá að hann hafi komið til landsins sem túristi, eins og stundum er gert, og hafi því ekki atvinnuleyfi. A.m.k. vitum við ekkert um samband þessa manns og Hauka. En við vitum að þetta er ansi góður leikmaður, öflugur bakvörður sem getur skotið 3ja stiga skotum. Við reiknum með honum á fimmtudaginn, jafnvel þótt Haukarnir vilji ekkert segja um málið, amk. ekki á heimasíðunni. Kannski á hann að vera "óvænt" leynivopn . . . . ??