Fréttir

Körfubolti | 1. desember 2003

Hvað gerist í kvöld í Grindavík?

Segja má að leikurinn í kvöld sé fyrsti alvöru leikurinn í deildinni sem máli skiptir fyrir Keflavík. Fókusinn hefur vissulega verið á Evrópukeppnina og svo reyndum við jú að vinna Hópbílabikarinn, en það tókst ekki, eins og menn muna. Deildin hefur rúllað svona og svona  . . . en ekkert merkilegt gerst í sjálfu sér. En nú er komið að ákveðnum tímamótum. Því ef við töpum í Grindavík í kvöld, má segja að vonir okkar um að ávinna okkur heimavallarrétt í úrslitakeppninni minnki verulega. Þar með væri Grindavík komið með 6 stiga forskot á okkur og auk þess væru Njarðvík og Snæfell með 2ja stiga forskot. En þetta eru jú allt ef . . . .

Ef hins vegar okkur tekst að sigra þá missum við ekki Grindavík frá okkur, í bili að minnsta kosti, og getum verið rólegir með deildina. En verkefnið er ekki auðvelt. Grindavík hefur unnið alla sína sjö leiki í deildinni og aðeins tapað einum alvöru leik í vetur, nefnilega gegn Njarðvík í hinum fjóru fræknu í Hópbílabikarnum. Þeir eru, og hafa lengi verið, afar erfiðir heim að sækja, þótt við eigum vissulega góðar minningar úr Röstinni frá því í vor. Með þá Edmund Saunders og Damon Johnson var Keflavíkurhraðlestin óstöðvandi og við völtuðum tvisvar yfir Grindjána í úrslitum Íslandsmótsins. Auk þess unnum við þá líka þar í Reykjanesmótinu í haust, þannig að nú hefur Keflavík unnið þrjá leiki í röð í Röstinni, sem telja verður all gott.

Grindavík hefur feykisterkt byrjunarlið með Darryl Lewis og Pál Axel fremsta í flokki stigaskorara. Síðan kemur Helgi Jónas sem átt hefur það til í gegnum tíðina að hrökkva í gírinn á heimavelli. Varnarlega eru þeir Gummi Braga og Dan Trammel sterkir undir körfunum. Veikleiki liðsins er kannski að Darryl hangir mikið á boltanum og sóknin er sundurlaus ef bomburnar eru ekki að falla að utan. Eins er breiddin ekki sérlega mikil þessa dagana í Grindavík. En tölurnar tala sínu máli, þeir hafa unnið alla sína leiki og verða örugglega vel stemmdir í kvöld.

Hlutverk Keflavíkurliðsins verður, líkt og ávallt, að keyra upp hraðann og nýta breiddina og hraðann sem í liðinu býr. Það er margsannað að ef það tekst, þá er Keflavíkurliðið afar sterkt, hins vegar er liðið veikara ef leikurinn róast of mikið, en það munu Grindvíkingar eflaust reyna. Þá er nauðsynlegt að sækja vel inn að körfunni og í því sambandi er mikilvægt að halda þeim Derrick og Jonna í leiknum til enda.

Spennan magnast og fróðlegt verður að sjá hvort Keflavíkurliðið getur náð upp sama krafti í INTERSPORT-deildinni og það hefur gert í Evrópukeppninni. Við vonum það besta.