Fréttir

Körfubolti | 21. mars 2005

Hvað gerist í Seljaskóla í kvöld?

Mikil spenna er hlaupin í einvígi Keflavíkur (nr. 1) og ÍR (nr. 6) í undanúrslitum Íslandsmótsins. ÍR-ingar unnu fyrsta leikinn og eiga möguleika á að nánast gera út um einvígið með sigri í kvöld, því aldrei hefur það gerst hjá körlunum að lið sem er 2-0 yfir í fimm-leikja seríu tapi. Þannig að Keflvíkingar verða heldur betur að taka sig saman í andlitinu ef ekki á illa að fara. ÍR-ingar hafa nú unnið þrjá leiki í röð í úrslitakeppninni, gegn ekki ómerkilegri liðum en Njarðvík og Keflavík, og eru á blússandi siglingu. Baráttuandinn er allsráðandi hjá þeim og fleytir þeim langt. Keflavík hefur aðeins unnið 2 af 4 leikjum sínum í úrslitakeppninni og þarf að fara að laga það hlutfall hið snarasta.

Það er gömul saga og ný að erfiðasti andstæðingur Keflavíkur er oft einbeitingarleysi og kæruleysi þegar menn telja að unnt sé að vinna leiki án þess að hafa mikið fyrir hlutum. Slíkt hugarfar var áberandi í fyrsta leiknum, en á daginn kom að það dugar hvergi. Það er nefnilega gömul saga og ný að gott lið sem ekki berst er einfaldlega ekki gott lið. Við höfum hins vegar tröllatrú á okkar mönnum og vitum að þeir geta verið svo miklu miklu betri, það hafa þeir oft sýnt í vetur, gegn mun sterkari liðum en ÍR. Þriggja stiga skotin voru ekki að detta, en þau þurfa í sjálfu sér ekki að koma í kippum, það er nóg að mæta grimmir til leiks og berjast, þá förum við í úrslit.

Og svo er náttúrulega rétt að minna á sætaferðir kl. 17.30 í boði SpKef, og hvetja alla til að skella sér í höfuðborgina og hvetja sína menn til dáða í kvöld

ÁFRAM KEFLAVÍK!