Hvað gerist í þriðja leiknum? Verður Keflavík Íslandsmeistari í kvöld?
Í kvöld reynir verulega á styrk allra leikmanna og þjálfara beggja liða. Grindvíkingar eru með bakið upp við vegginn fræga og mega ekki misstíga sig, ætli þeir ekki að tapa einvíginu 3-0. Þeir munu berjast með kjafti og klóm fyrir tilveru sinni því þeir vilja sýna og sanna fyrir sjálfum sér og alþjóð að þeir geti stöðvað Keflavíkurhraðlestina.
Erfiðleikar Keflvíkinga eru af öðrum toga. Þeir hafa leikið allsvakalegan körfubolta í úrslitakeppninni og allir tala um þá sem næstu Íslandsmeistara. Slíkt tal og slíkur hugsanagangur er hættulegur fyrir einbeitinguna ef menn láta smitast og fara að hugsa lengra en sem nemur næsta leik. Smá kæruleysi í upphafi leiks, eða í upphafi seinni hálfleiks gæti nefnilega gefið hættulegum skyttum Grindavíkur séns á 3ja stiga sprengjuárás, þvi enn hefur það ekki gerst að allar skytturnar smelli samtímis í gang. Ástæðan fyrir því er vissulega stífur varnarleikur okkar manna á skytturnar og má því ekkert gefa eftir í þeim efnum.
Varnarleikur Grindavíkur hefur verið töluvert diskúteraður meðal “spekinga” á síðustu dögum. Engu líkara var á mánudaginn en að Friðrik Ingi hefði hugsað með sér að ef þeim tækist að stoppa skytturnar þá gæti lið hans átt sigurvon. Það reyndist ekki rétt, því Eddi og Damon léku lausum hala og skoruðu nánast að vild.
Það er ekki auðvelt að stoppa hraðlestina, því vopnabúrið er afar skætt og fjölbreytt. Kannski að Friðrik ákveði núna að prófa aðra taktík, t.d. að pakka liðinu undir körfuna og taka sénsinn á því að skytturnar klikki. Þá myndi púðrið fara í að reyna að hægja á tvíeykinu DJ&Ed en gefa Gaua, Magga & Co. lausan tauminn. Hver veit hvert uppleggið verður? Alla veganna hljóta þeir að stefna að því að hægja á leiknum, því þótt Grindavík vilji oftast spila hratt, ráða þeir ekki við sama hraðann og Keflavík, það er fullreynt. Við bíðum spent eftir að sjá hvernig þeir ætla að tækla liðið í kvöld.
Siggi sigursæli þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af sóknarleiknum, hann hefur án efa búið liðið undir alls kyns varnir Grindjána og eins og sást í fyrsta leiknum, hefur hann sjálfur nokkur skemmtileg afbrigði í handraðanum. Darryl Lewis hefur verið erfiður viðureignar en einstaklingsframtak hans dugir skammt. Lítið hefur verið beitt af pressuvörnum í þessu einvígi, þar sem bæði liðin hafa afar skæða bakverði sem geta á góðum degi hreinlega stútað slíkri vörn. Helsta hugðarefni Sigga er að halda einbeitingunni hjá sínum mönnum, en það er létt verk ef marka má undanfarna leiki. Þó, eins og áður sagði, er ávallt einhver hætta á einbeitingarleysi við aðstæður sem þessar.
Nú er lítið eftir af þessu Íslandsmóti og getur hver leikur sem eftir er orðið sá síðasti. Því er það nánast skylda stuðningsmanna að fjölmenna á leikinn og hvetja sitt lið. Við Keflvíkingar munum mæta glaðir í Röstina og styðja okkar lið til sigurs – ÁFRAM KEFLAVÍK!!!