Hvað verður um Lakers?
Það eru ekki öll lið stórlið, svo mikið er víst. Í NBA eru Lakers án efa mesta stórliðið, enda hafa þeir, ásamt Boston Celtics, ríkustu sigurhefðina og sem meira er, þeir hafa aldrei dalað líkt og Celtics. En nú eru blikur á lofti hjá helsta stórliði NBA. Liðið hefur á undanförnum árum haft tvo af allra bestu leikmönnum heims innan sinna vébanda (sumir segja þá tvo bestu) og þar að auki hefur félagið haft sigursælasta þjálfarann í seinni tíð við stjórnvölinn, Phil Jackson.
En allir sem fylgjast með NBA vita að það getur verið erfitt að hafa of mörg stór egó innan sama liðsins. Reyndar hefur það tekist hjá Lakers og er ástæðan eflaust fyrst og fremst lagni þjálfarans. Árangurinn hefur enda verið góður, þrír titlar á fimm árum. En enginn var titillinn nú í ár og þá hriktir í stoðunum. Að vera númer tvö er einfaldlega ekki nógu gott fyrir félag eins og Lakers sem er með lang best mannaða lið deildarinnar.
Hvað gerist nú? Jackson er hættur sem þjálfari og margir vilja meina að ástæðan sé að Buss, eigandinn, hafi tekið þá ákvörðun að halda Kobe Bryant, hvað sem það kosti. Og Kobe hefur látið þau orð falla að hann geti vel hugsað sér að vinna með öðrum en Jackson og Shaq. Shaq og Kobe eru engir perluvinir svo það gæti vel verið að þessu besta tvíeyki samtímans verði splundrað, bara vegna þess að þeir eru of mikil eiginhagsmunaseggir! Ótrúlegt, en satt. Og ef velja á milli Kobe og Shaq, þá er líklegt að Buss velji Kobe. Hann er 6 árum yngri en Shaq og flottari leikmaður á að horfa, minnir oft á Michael Jordan, og líklegri en Shaq til að halda vinsældum. Það er, ef honum tekst að halda sér utan fangelsis....
Sá sem þetta skrifar hefur lausn á málinu. Það væri nefnilega hægt að skipta á Shaq og tveimur til þremur góðum Dallas leikmönnum, t.d. Dirk Nowitski og Antoine James . . og kannski fleirum. Þessi skipti gætu hentað báðum félögum ágætlega. Svo taka menn Rudy T eða Bryan Shaw eða Kurt Rambis eða jafnvel Pat Riley aftur sem þjálfara og þá verða Lakers komnir í gírinn aftur fyrir næsta ár. Og eflaust Dallas líka . . . (það væri líklegast best fyrir þá að skipta Don Nelson út og reyna að landa Phil Jackson í staðinn).
En þetta eru nú bara svona pælingar . . .