Hvar verður ÞÚ í kvöld?
Nú er komið að því! Keflvíkingar eru komnir með blóðbragð í munninn og ætla sér alla leið. Leikur nr. 4 fer fram í Toyota Höllinni í kvöld og þurfa strákarnir á ÞÍNUM stuðning að halda. Leikurinn hefst kl. 19:15, en miðasala hefst kl. 17:00 í Toyota Höllinni.
Valdimar treður upp í hálfleik og 4 heppnir bolta-gríparar fá að spreyta sig á Iceland Express borgarskotinu. Með körfu er hægt að vinna ferð að eigin vali til allra áfangastaða Iceland Express í Evrópu.
Handhafar stuðningsmannakorta niðri eiga möguleika á því að versla sér juicy hamborgara og drykk með í VIP herberginu fyrir leik. Kökur og kræsingar í hálfleik þar einnig.
Eins gott að mæta snemma til að tryggja sér sæti. Nokkur sæti eru laus niðri og kostar miðinn á þennan einstaka leik 2500 kr. Hægt er að hafa samband við Bigga (618-5155) eða Hemma (660-1713) eða Gunna (825-0052).
NÚ FÖRUM VIÐ ALLA LEIÐ!
Áfram Keflavík!