Fréttir

Karfa: Konur | 28. mars 2012

Hvar verður þú í kvöld?!

Í kvöld er algjör ögurstund fyrir Keflavíkurstúlkur. Það er að duga eða drepast. Þær eru 0-2 undir í einvíginu og dugar ekkert annað heldur en sigur í næstur þremur leikjum. Við Keflvíkingar höfum gert það áður og það ár fórum við alla leið og lönduðum Íslandsmeistaratitli. Af hverju getum við það ekki aftur?!? VIÐ GETUM ÞAÐ!

Stelpurnar þurfa á stuðningi allra að halda í þessari erfiðu baráttu og er eins gott fyrir alla Keflvíska unnendur körfuknattleiks að hypja sig upp úr sófanum í kvöld og mæta í húsið til að styðja stelpurnar til dáða!

Leikurinn hefst kl. 19:15 í Toyota Höllinni.

 

Við viljum ÞIG í húsið í kvöld!