Í kvöld er að duga eða drepast!
Bikarleikir laða fram það skemmtilegasta í körfuboltanum, því mikið er í húfi, nefnilega möguleg þátttaka í sjálfum úrslitaleiknum í Höllinni sem er jú stærsti leikur ársins hverju sinni. Ef menn tapa er allt úr sögunni og eitt ár líður þar til sambærilegt færi gefst aftur. Það er því allt lagt undir.
Ekki spillir fyrir ef bikarleikurinn er akkúrat á milli nágrannanna og tveggja helstu stórveldanna í íslenskum körfubolta á seinni árum, Keflavík og Njarðvík. Þá fara hjörtun að slá hraðar og leikmenn og stuðningsmenn gera sig klára í stríð.
Keflavík hefur opnað möguleikann á því að styrkja liðið fyrir baráttuna, með sama hætti og Njarðvík gerði í fyrra, sem er að ráða nýjan "Kana" til leiks þegar "gamli" Kaninn verður íslenskur ríkisborgari. Í raun er ekkert merkilegt um það að segja, það lýsir ákveðnum metnaði og svo lengi sem félagið hefur fjárhagslegt bolmagn til slíkra aðgerða, eru þær eðlilegar. Heimasíðan veit fyrir víst að svo er í þessu tilfelli.
Nýji maðurinn, Saunders, mætti á æfingu í gær og þótti sýna ágætis tilburði. KKÍ hefur staðfest að hann er löglegur með Keflavík og mun hann leika í kvöld. Hann mun eflaust styrkja liðið þegar fram í sækir, þó óraunhæft sé að binda of miklar vonir við hann í kvöld.
Það er hins vegar undir öllum hinum leikmönnunum komið að sýna sitt rétta Keflavíkurhjarta í kvöld og leika af stolti fyrir félagið
Heimasíðan á von á frábærum leik og frábærri stemmingu.
ÁFRAM KEFLAVÍK!