Körfubolti | 12. nóvember 2003
Í kvöld mætast Ovarense og Madeira
Portúgölsku liðin í B-riðli Vestudeildarinnar, Ovarense og Madeira, mætast í kvöld, miðvikudag kl. 21.00 að staðartíma (sem er sá sami og á Íslandi á veturna, eða hvað?). Leikið er í Ovarense. Þessi leikur er forvitnilegur, því Ovarense vann Madeira á dögunum á útivelli í deildinni, en Madeira vann hins vegar Toulon og náði síðan fræknum sigri í deildinni um helgina. Ovarense tapaði hins vegar um helgina gegn Benfica, en heldur samt efsta sætinu í Portúgal. Fróðlegt verður að sjá hvort Ovarense nái aftur að leggja Madeira, eða hvort valdajafnvægið sé að raskast í Portúgal. Áhugasamir geta fylgst með úrslitunum á heimasíðum félaganna eða á heimasíðu Vesturdeildarinnar, hvoru tveggja að finna undir "
Karfa á Netinu" hér til hliðar.