Ingunn og Sara léku sinn fyrsta A-landsliðsleik í sigri gegn Möltu
Kvennalandslið Íslands sigraði Möltu í gær örugglega, 77-59, á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg. Þær Ingunn Embla Kristínardóttir og Sara Rún Hinriksdóttir léku báðar sinn fyrsta A-landsliðsleik og stóðu sig vel. Auk þeirra eru þær Pálína Gunnlaugsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir einnig með liðinu og léku þær báðar með í gær. Stigahæst í liði Íslands í gær var atvinnumaðurinn Helena Sverrisdóttir sem fór mikinn og endaði með 28 stig, 14 fráköst og 2 stoðsendingar.