Fréttir

Körfubolti | 1. september 2008

Innskráning hjá körfunni

Innskráning fyrir alla yngri flokka hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur fer fram mánudaginn 1.september og þriðjudaginn 2. september milli kl. 17:00 - 19:30 í K-húsinu við Hringbraut.

Þeir sem ganga frá skáningu fyrir allt árið fá ávísun upp á 1500.-krónur fyrir körfuboltaskó hjá Sportbúð Óskars og einnig fá allir sem eru í 1. - 6. bekk gjöf frá körfuknattleiksdeildinni, nýja körfuknattleiksbúning Keflavíkur sem leikið verður í, í vetur.

Bjóðum alla nýja sem gamla körfuknattleiksiðkendur velkomna.

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur