Intersport deildin í kvöld: Keflavík heimsækir Snæfell í Stykkishólmi
Keflavík hefur unnið alla þá titla sem þeir hafa keppt um í haust, en einna helst hefur liðið hikstað í deildarkeppninni. Í kvöld er einmitt leikur sem fær ekki mikla athygli og enginn bikar er í boði. En einmitt í svoleiðis leikjum höfum við kannski verið hvað veikastir. Því er leikurinn í kvöld kannski prófsteinn á það hvort menn geti haldið einbeitingunni í "venjulegum" leikjum.
Snæfellsliðið hefur leikið ágætlega, m.a. unnið ÍR í Seljaskóla sem er meira en við gátum. Tveir menn bera liðið uppi, Clifton Bush og Hlynur Bæringsson, og skora þeir kannski saman 50 stig og hirða 30 fráköst í leik. Samt sem áður er okkar lið mun betur mannað og getur unnið leikinn ef fókusinn er til staðar. Okkar helsti óvinur í leikjum sem þessum er kæruleysið og því þurfa menn að leggja áherslu á að enbeitingin sé til staðar. Því við viljum ekki missa KR og Grindavík meira en 2 stig fram úr okkur í deildinni.
ÁFRAM KEFLAVÍK!