Fréttir

Körfubolti | 15. janúar 2004

ÍR-ingar teknir í karphúsið, 111-79

Fyrri hálfleikur í kvöld var frekar bragðdaufur, 43-35, en í þeim seinni sýndu Keflavíkurpiltar ágæta takta og rúlluðu yfir slaka ÍR-inga. Niðurstaðan var 32ja stiga sigur, 111-79. Gunni E og Hjörtur röðuðu niður þristum og Fannar Ólafsson kom sterkur inn í liðið með sína alkunnu baráttu. Hann skoraði 17 stig og hirti 9 fráköst á þeim 19 mínútum sem hann lék.

Eftir slakan fyrri hálfleik komu menn einbeittir til þess síðari og í stöðunni 48-41 komst Keflavíkurhraðlestin á sporið. Drengirnir völtuðu yfir ÍR á fimm mínútna kafla og skoruðu 22 stig gegn 4 og breyttu stöðunni í 70-45. Á þessum kafla settu m.a. Hjörtur og Gunni E niður tvo þrista hvor og Derrick skoraði sex stig.

Eftirleikurinn var auðveldur þar sem ÍR-ingar gáfust upp og fóru að einbeita sér að því að slá og hrinda í stað þess að leika körfubolta. Guðjón þjálfari var mjög ósáttur við þessa spilamennsku sem endaði illa, þar sem Fannar var sleginn það fast í þumalfingur að hann brotnaði. Betur er gert grein frá því annars staðar á heimasíðuni.

Mesta athygli vakti leikmaður nr. 11, Ryan Leier. Hann var í hálfgerðu trúðshlutverki allan leikinn og var sífellt að skiptast á skoðunum við áhorfendur og var með alls konar stæla, henti t.d. í tvígang boltanum burt þegar búið var að dæma. Ef markmið hans var að ná athyglinni, þá tókst það, en hann virtist ekkert sérstaklega vera að hugsa um að reyna að vinna leikinn. Hann er ekki slakur leikmaður og átti t.d. skemmtilega tilburði þegar hann "klobbaði" Derrick eitt sinn. Samt er svona hegðun undarleg og varla liðinu til framdráttar, þótt áhorfendur hafi oft hlegið, líkt og á sýningu, frekar en á leik á Íslandsmóti.

Flestir Keflvíkingar áttu prýðisleik, sérstaklega í seinni hálfleik, nema hvað Halldór og Jonni voru með daufara móti. Þessi sigur var ágætur, en mótstaðan ekki mikil. Við reiknum aftur á móti með verulegri mótspyrnu á laugardaginn þegar haldið verður til Grindavíkur í undanúrslit Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar.

Hér má sjá tölur úr leiknum.