ÍR sigurvegari Reykjanes Cup Invitational
Lið ÍR varð sigurvegari Reykjanes Cup mótsins í körfuknattleik karla sem fram fór um helgina. Þar kepptu sex úrvalsdeildarlið en mótið þykir ágæt upphitun fyrir komandi keppnistíð á Íslandsmótinu.
ÍR og Fjölnir kepptu til úrslita þar sem Breiðhyltingar undir stjórn Gunnars Sverrissonar höfðu betur, 98-91. Keflavík varð þriðja sæti eftir með 104-102 sigur á Íslandsmeisturum Snæfells og Njarðvík hafnaði í 5. sæti eftir 76-69 sigur á Grindavík, sem varð í sjötta og neðsta sæti.
Lokastaða mótsins:
1. ÍR
2. Fjölnir
3. Keflavík
4. Snæfell
5. Njarðvík
6. Grindavík