Ísfirðingarnir koma í Sláturhúsið
Úrslit leikja í kvöld voru okkur óhagstæð og möguleikarnir á að komast í efsta sæti deildarinnar eru nánast úr sögunni. Bæði Snæfell og Grindavík unnu sína leiki. En samt er mikilvægt fyrir okkar lið að halda þeim góða dampi sem verið hefur á liðinu fram að úrslitakeppni. Kannski lendir annað hvort Grindavík eða Snæfell í því að tapa tveimur leikjum og ef slíkt gerist þá er eins gott að við séum tilbúnir í að hafa sætaskipti.
Sex leikir eru eftir og nú er komið að heimaleik gegn KFÍ. Ísfirðingar eru í botnbaráttunni og möguleikar okkar á sigri ættu að vera nokkuð góðir, svona fyrirfram. En ekkert er öruggt í þessum bransa eins og dæmin sanna. Við þurfum alltaf að halda einbeitingunni til að vinna leiki, svo mikið er víst.
Ísfirðingar hafa lent í töluverðum hremmingum í vetur með leikmenn sína. Spanich var mikill skorari en lítill liðsmaður, Jeb Ivy meiddist og Darko Ristic stakk af. Í staðinn eru komnir nýjir menn sem bera uppi leik liðsins. Á pappírum er KFÍ liðið þó ekki sterkt en með góðri baráttu er ýmislegt hægt. Okkar menn þurfa að vita það og gæta þess að það þarf að leika leikinn til að vinna hann. Við vonumst eftir hröðum og skemmtilegum leik, í anda Keflavíkurhraðlestarinnar.
ÁFRAM KEF!!