Fréttir

Körfubolti | 29. ágúst 2005

Ísland - Danmörk kl. 14 á ljósanótt

Það verður enginn smá leikur í Sláturhúsinu núna á laugardaginn, þegar Ísland mætir Dönum í Evrópukeppni landsliða. Danir eru með frábært lið sem erfitt er við að eiga. Við sáum nokkra leikmenn hér síðasta vetur þegar Bakken Bears heimsótti okkur en þó nokkrir leikmenn koma úr því sterka liði. Leikurinn er mjög mikilvægur og með góðum leik og stuðningi áhorfenda er allt mögulegt. Það er nokkuð ljóst að strákarnir ætla sér sigur í þessum leik og fjölmargir stuðningsmenn ætla að mæta og fylla húsið. Leikurinn er hluti að Ljósanótt sem verðu haldin í bænum sama dag og alveg fram á rauða nótt. Hér má sjá flottar auglýsingar fyrir leikinnHér er hin

. 

Allir í Sláturhúsið laugardaginn kl. 14.  Áfram Ísland.