Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 26. júní 2007

Íslandsmeistarar 8. flokks stúlkna úr Keflavík á leið í æfingabúðir til 76ers NBA liðsins

Íslandsmeistarar 8. flokks stúlkna úr Keflavík á leið í æfingabúðir til 76ers NBA liðsins

 Þessar Keflvísku stúlkur náðu þeim merka áfanga nú í vor að verða Íslandsmeistarar þriðja árið í röð og til að bæta leik sinn ennþá betur var ákveðið að halda til Mekka körfuboltans.  Flogið verður til New York 28. júní með 18 stúlkur og keyrt til búðanna strax sama dag enda ekki langt að fara.  Stelpurnar verða í búðunum í 6 daga og taka vel á því.  Æfingabúðirnar eru staðsettar við Stroudsburg í Pennsilvaníu uppi í fjalli sem heitir Pocono Mountain.  Í æfingabúðirnar koma krakkar frá yfir 40 löndum og öllum fylkjum Bandaríkjanna.  Þarna mæta helstu stjörnur NBA liðsins og leggja sitt af mörkum en stelpurnar fá tvær pásur yfir daginn þar sem þær geta gert ýmislegt en á svæðinu er mini golf, kajakar og auðvita körfuboltavellir.  Í lok ferðar á að taka Manhattan með stæl og skoða Madison Square Garden og fá að kíkja í búningsklefa New York Nicks og meira.
 Markmið ferðarinnar er að ná framförum sem og að vera landi og þjóð til sóma en það ættti ekki að vera erfitt þar sem þessar stúlkur eru einstaklega samstillur hópur með frábært foreldrastarf á bak við sig.
 Stelpunum langar að koma á framfæri þakklæti til allra sem styrktu þær en þeim var einstaklega vel tekið bæði af fyrirtækjum og einstaklingum.
Kveðja,
Margrét Sturlaugsdóttir
Þjálfari