Íslandsmeistarar Keflavíkur hyggja á þátttöku í Bikarkeppni Evrópu – viðtal við formanninn um þessi mál
Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar fékk á dögunum boð um að taka þátt í nýstofnaðri Bikarkeppni Evrópu (Europe Cup Men) sem leikinn verður í vetur í fyrsta sinn á vegum FIBA Europe. Heimasíðan ræddi við Hrannar formann um þessi mál.
Hrannar, af hverju Evrópukeppni?
Keflavík er Íslandsmeistari og Bikarmeistari og við viljum sem slíkir efla okkar félag og etja kappi við erlend lið og sjá hvar við stöndum. Alþjóðleg keppni er okkar leið til að styrkja okkar klúbb enn frekar fyrir framtíðina. Við viljum keppa við þá bestu og verða betri.
En er það ekki óðs manns æði að taka þátt í Evrópukeppni? Býður þetta ekki bara upp á taprekstur og skuldasöfnun?
Við skulum vona ekki. Reynslan hefur sýnt að svona þátttaka er kostnaðarsöm, en við reynum að takmarka fjárhagslega áhættu deildarinnar, auk þess sem við teljum nokkra tekjumöguleika vera í tengslum við okkar þátttöku. Við erum búin að skoða þetta mál gaumgæfilega en þó erum við enn á byrjunarreit.
Takmarka áhættu . . .hvernig gera menn það?
Jú, stjórnin tekur að sér að bera ábyrgð á ákveðnum kostnaði í tengslum við keppnina, svo sem mótttöku erlendra gesta, en við höfum samið við leikmenn og þjálfara um að þeir sem ferðast til útlanda bera sjálfir ábyrgð á þeim kostnaði, hvort sem um er að ræða leikmenn, þjálfara eða stjórnarmenn.
Þurfa þá leikmenn að borga?
Nei, við ætlum að setja í gang öfluga fjáröflun, stjórn og leikmenn og sérstök fjáröflunarnefnd, en ef ekki safnast nóg, þá verða allir þeir sem ferðast að borga mismuninn sjálfir. Með þessu móti mun ekki falla meiri kostnaður á deildina en sá sem fyrirfram er þekktur.
Þetta er athyglisvert, en vita menn núna hver heildarkostnaðurinn verður?
Já, við höfum nokkuð góða hugmynd um það, en ég vil kannski ekki tala um það hér, líka af því að við eigum eftir að skoða hina hliðina á myntinni, þ.e. tekjuhliðina, aðeins betur. En okkar stefna er að sjálfsögðu að ná árangri í körfubolta án þess að safna skuldum, eins og alltaf.
Ok, en segðu okkur aðeins frá þessari keppni.
Reiknað er með 64 félögum í fjórum deildum, Vestur, Norður, Austur og Mið Evrópu. Í hverri deild leika um 16 lið í fjórum riðlum. Upp úr hverjum riðli komast síðan tvö efstu, alls átta lið sem leika nokkurs konar útsláttarkeppni þar til aðeins eitt lið er eftir í hverri deild. Þau fjögur sem vinna deildirnar leika síðan í Final Four keppni um titilinn Bikarmeistari Evrópu.
Vitum við hverjir verða andstæðingar Keflavíkur?
Nei, dráttur í riðla verður næsta sunnudag, þann 20.júlí, en við vitum að við verðum í 3ja eða 4ra liða riðli, líklegast í Vestur-deild, t.d. með félögum frá Frakklandi, Þýskalandi, Sviss og Portúgal.
Og hvenær byrjar svo keppnin?
Við munum hafa nákvæmar upplýsingar um leikdaga eftir dráttinn þann 20. júlí, en gera má ráð fyrir að við fáum amk. þrjá Evrópuleiki til Keflavíkur í nóvember og desember í haust og vonandi munu fjölmargir keflvískir körfuboltamenn nota tækifærið og sjá okkur etja kappi við erlend félagslið. Það er stefna okkar að skapa rífandi stemmingu í kringum Evrópukeppnina og fylla kofann og standa okkur vel. Nú er bara að bretta upp ermar . . .
Heimasíðan þakkar Hrannari fyrir spjallið og mun fylgjast grannt með þessum spennandi málum.