Fréttir

Körfubolti | 9. apríl 2004

Íslandsmeistarar kvenna unnu stjórnina í svakalegum leik

Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar skoraði á Íslandsmeistara kvenna í körfuboltaleik í dag. Reglurnar voru þær að það lið sem fyrr ynni 3 leiki færi með sigur af hólmi og öðlaðist rétt til að bera nafnbótina Stjórnarmeistarar Keflavíkur 2004. Hver leikur var upp í 20 stig og fékkst 1 stig fyrir körfuna, en 2 ef skorað var utan 3ja stiga línunnar. Leikmenn sáu sjálfir um dómgæslu og var það mál manna sem fylgdust með leikjunum að töluvert hefði hallað á stjórnina í dómgæslunni.

Þessi magnaða keppni var mun erfiðari en venjulegar úrslitakeppnir, því allir leikirnir voru leiknir sama daginn, með um einnar mínútu hléi á milli leikja. Kvennaliðið var fullskipað nema hvað Erlurnar flúðu til Florida skömmu fyrir leik og María Ben treysti sér ekki í slaginn. Stjórnin var skipuð sjö valinkunnum körfuboltahetjum í toppformi.

Leikirnir voru hreint út sagt magnaðir og eflaust með betri leikjum sem sést hafa á fjölum íþróttahúsa í Reykjanesbæ um langa hríð. Stjórnin byrjaði betur í fyrsta leik og hefðu með eðlilegum leik unnið öruggan sigur, staðan var t.d. 19-18 og leikurinn var uppí 20. En þá negldi Birna niður þristi (sem gaf 2 stig) og stúlkurnar unnu 20-19. Frekar óverðskuldað, fannst fólki almennt. Staðan 1-0 fyrir stúlkurnar.

Næsti leikur byrjaði vel fyrir stjórnina. Einar Skaftason stal boltanum, brunaði upp völlinn og skoraði af miklu harðfylgi. Hann komst reyndar ekki aftur í vörnina og féll næstum í yfirlið vegna súrefnisskorts. Það þótti reyndar bera á því að stjórnarmenn ættu erfitt með að hlaupa aftur í vörn. Eftir að stjórnin hafði staðið sig vel framan af tóku stúlkurnar að dúndra niður þristum í gríð og erg, þrátt fyrir afar grimman varnarleik stjórnarinnar. Reyndar örlaði á því að menn rugluðust í ríminu í vörninni og  fundu oft ekki "manninn" sinn. Enda voru innáskiptingar stúlknanna afar tíðar og þar sem stjórnarmenn voru uppteknir við að anda inn og út, náðu þeir ekki að fylgja eftir öllum þessum breytingum og hreinlega rugluðust í ríminu. Stúlkurnar skutu stjórnina í kaf í þessum leik. Staðan 2-0.

Nú voru góð ráð dýr. En stjórnin byrjaði með látum, Krissi og Hrannar settu loks niður þrista eftir óteljandi tilraunir. Hermann geystist fram í eitt hraðupphlaup og Biggi Braga blokkaði Önnu Maríu með látum, en þreyttist við hasarinn. Óli náði sveifluskoti af kantinum og meira að segja náði Bangsi að skora líka. Stúlkurnar virkuðu ráðvilltar og stjórnin vann öruggan 20-10 sigur. Staðan 2-1 fyrir stúlkurnar og allt að verða vitlaust í höllinni.

Fjórði leikurinn byrjaði vel fyrir stjórnina sem komst í 10-5. En þá gerðist svolítið skrýtið. Stúlkurnar tóku upp á þeirr ósvífni að hlaupa hraðar og hraðar fram og tilbaka. Stjórnarmenn horfðu agndofa á og gátu sig hvergi hreyft. Þeir reyndu að neyta aflsmunar en það gekk illa, stelpurnar voru alltaf farnar. Að lokum voru það stórskyttur stúlknanna, enn og aftur, sem tryggðu þeim sigurinn í þessari stórkostlegu rimmu. Birna negldi niður enn einum þristinum, hún var um 2 metra fyrir utan línuna og dúndraði spjaldið oní. Stjórnin mótmælti, fannst þetta ósangjarnt, en allt kom fyrir ekki. Þær unnu leikinn 20-18 og einvíginu lokið, 3-1.

Anna María hafði á orði eftir leikinn að þetta hefði líklegast verið erfiðasti leikur vetrarins og þessi titill einn sá sætasti á ferlinum. Stjórnarmenn fóru í heita pottinn eftir leikinn. Þeir voru óánægðir með dómgæsluna og fannst óheppnin hafa elt þá. Hugsanlega verður farið yfir myndband af leiknum og sent inn til aganefndar, þar sem Halldóra og Bryndís eru grunaðar um grófan leik.

Leikurinn verður sýndur í heild sinni á Sky Sports á næstunni.