Íslandsmeistararnir fundu taktinn í Ljónagryfjunni
Skrýtið með kvennaliðið okkar. Það getur leikið afar vel og svo getur það leikið skelfilega illa. Síðustu tveir leikir voru slakir, en nú fundu konurnar taktinn á parkettinu í Njarðvík. Þær spiluðu grimma vörn, börðust vel og keyrðu vel upp hraðan, rétt eins og við eigum að venjast þeim. Og þá var ekki að árangrinum að spyrja. Keflavík leiddi í hálfleik með níu stigum, 30-39, en tók síðan öll völd á leiknum í þeim seinni og landaði stórsigri, 58-90.
Nú kannaðist maður við liðið, hittnin var góð og það sem miklu máli skiptir, hraðinn mikill. Kristín Blöndal barðist vel og átti margar frábærar sendingar fram völlinn í hraðupphlaupum sem enduðu meö körfu. Kristín átti alls 11 stoðsendingar og komst nærri "þrefaldri tvennu" með 11 stig og 9 fráköst. Frábær leikur hjá henni. Birna og Erla Þorsteins voru grimmar í stigaskoruninni (19 og 17 stig) og María Ben Erlingsdóttir lék sérlega vel. Hún er afar vandvirk og nýtir færin sín vel. Frábært efni á ferðinni þar. Hún skoraði 13 stig og hirti 11 fráköst.
En kannski má segja að sigurinn hafi verið full stór "miðað við gang leiksins", eins og stundum er sagt, en Njarðvíkurstúlkur gáfust upp í restina og okkar konur sölluðu niður körfunum. Nú vonum við að í kjölfarið fylgi nokkrir góðir leikir, þar sem hraðinn og grimmdin eru í fyrirrúmi.