Íslandsmeistararnir halda lokahófið á föstudaginn
Íslandsmeistarar karla og kvenna halda lokahóf eða uppskeruhátið sína á föstudaginn í félagsheimilinu Mánagrund. Það verður mögnuð stemming eins og alltaf þegar bæði liðin verða Íslandsmeistarar og skemmtiatriðin verða heimatilbúin að hætti Keflvíkinga. Veislustjóri verður Gísli Gíslasson sem gerði það gott með leikfélagi Keflavíkur í "Bærinn breiðir úr sér". Hápunktur kvöldsins er svo þegar lið ársins, varnarmaður ársins, mestu framfarir og leikmenn ársins verður tilkynnt.