Fréttir

Körfubolti | 12. júlí 2003

Íslandsmeistararnir sigruðu á Hraðmóti ÍR

Sumarmót ÍR-inga var leikið í síðustu viku. Leikirnir voru flest allir jafnir og spennandi og svo fór að Íslandsmeistararnir okkar fóru með sigur af hólmi eftir 120-116 sigur gegn Grindavík í síðasta leik. Bestu leikmenn Keflavíkur í mótinu voru þeir Gunnar Einarsson og Magnús Gunnarsson, en einnig þótti Halldór Halldórsson standa sig með prýði. Falur Harðarson, Jón Hafsteinsson og Sverrir Þór léku ekki með liðinu. Sjá umfjöllun um mótið á heimasíðu ÍR, www.ir-karfa.is.