Íslandsmeisturum spáð öðru sæti
Íslandsmeisturum Keflavíkur síðustu þriggja ára var spáð öðru sæti í Iceland express-deildinni. Fyrsta sæti fengu Njarðvíkingar rétt eins og í fyrra. Þetta var niðurstaðan í spá forsvarsmenn, þjálfara og fyrirliða félaganna, en spáin var kynnt á blaðamannafundi í dag.
Spáin leit svona út:
Njarðvík 408 stig, Keflavík 389 stig, Grindavík 365 stig, KR 325stig, Skallagrímur 237stig, Fjölnir 210 stig, ÍR 199 stig, Þór 197 stig, Snæfell 143 stig, Hamar/Selfoss 100 stig og Höttur 43 stig
Íslandsmeisturum Keflvíkur er sem fyrr spáð sigri í Iceland Express-deild kvenna. Keflavík hlaut 102 stig, en í næsta sæti lentu Grindavíkurkonur með 84 stig. Haukum er spáð þriðja sætinu, Haukar hlutu 70 stig. ÍS er spáð fjórða sæti, en Stúdentar fengu 60 stig. Nýliðum Breiðabliks er spáð fimmta sætinu, en Blikar fengu 35 stig. KR er spáð falli úr deildinni, KR fékk 27 stig. KR tók sem kunnugt er sæti Njarðvíkur þegar liðið var dregið úr keppni. KR féll úr deildinni á síðasta keppnistímabili.