Íslandsmót hjá 8.fl. drengja um helgina í TM-höllinni.
Þessir ungu meistarar munu leika aðra umferð Íslandsmótsins hér í TM-höllinni um helgina. Stefnan er sett á að vinna riðilinn og komast upp um riðil en drengirnir hafa verið duglegir að æfa undanfarnar vikur.
Drengirnir leika tvo leiki á laugardag og svo tvo leiki á sunnudag á eftirfarandi tímum:
Laugardagur.
11:00 Keflavík - Valur.
14:00 Keflavík - Sindri.
Sunnudagur.
10:00 Keflavík - Þór Akureyri.
13:00 Keflavík - Skallagrímur.
Hvetjum jafnaldra þeirra og alla áhugamenn um körfubolta til að kíkja í íþróttahúsið og hvetja drengina í leikjum þeirra.
Áfram Keflavík !