Körfubolti | 27. maí 2004
Íslendingar eru þrefaldir Norðurlandameistarar yngri landsliða í körfubolta
Eins og fram hefur komið unnu yngri landslið Íslands frækin afrek á Norðurlandamóti fyrir skömmu. 16 ára landslið drengja og stúlkna sem og 18 ára landslið pilta urðu öll Norðurlandameistarar eftir glæsta sigra gegn Svíum í úrslitaleikjum. Ítarlega er greint frá þessum afrekum á heimasíðu KKÍ,
www.kki.is. Heimasíðan vill óska öllum leikmönnum sérlega til hamingju með frábæran árangur og einnig þjálfurum, öllum aðstandendum og reyndar öllum körfuboltaunnendum á landinu. Þessi árangur sýnir að íslenskir unglingar hafa tekið framförum og megum við ætla að landslið okkar verði sterkari í kjölfarið. Okkur Keflvíkingum þykir vitanlega gaman að hafa átt þátt í þessum afrekum, því Keflvíkingar voru í öllum landsliðunum, einn í hvoru drengjaliðinu og sjö í stúlknaliðinu. Auk þess áttum við einn þjálfara og tvær stúlkur í 18 ára stúlknaliðinu sem keppti einnig á mótinu og stóð sig með prýði. Sérlega skemmtilegt að geta skotið stærri þjóðum á borð við Svíþjóð og Finnlandi ref fyrir rass, því oftast hafa íslensk landslið ekki sótt gull í greipar þeirra. Karfan er greinilega á uppleið og verður í framhaldinu gaman að sjá A-landslið karla og kvenna keppa í sumar og haust.