"Ívar hefur greinilega annan skilning á orðinu samkomulag en ég" segir formaður deildarinnar
Undanfarna daga hefur Morgunblaðið skrifað um að kvennalið ÍS fékk sér Kana til að leika einn leik fyrir 5. janúar til að geta haldið þeim möguleika opnum að fá sér Kana seinna á leiktíðinni. Það var síðan haft eftir Hrannari formanni Kef að ÍS myndi brjóta heiðusmannasamkomulag með því að fá sér Kana. Ívar, þjálfari ÍS, lét svo hafa eftir sér í Mogganum í morgun að ekkert samkomulag væri í gangi. Heimasíðan skilur þetta ekki alveg og spurði formanninn um þetta mál.
Heimasíðan: Er samkomulag við ÍS um að taka ekki Kana?
Hrannar: Samkvæmt mínum skilningi, já. Ívar hringdi í mig og talaði mikið og lengi um það hve mikil vitleysa það væri að fara að eyða peningum í Kana, nær væri að láta íslensku stelpurnar útkljá þetta á milli sín. Ég var sammála Ívari og það var mat okkar beggja að ÍS og Keflavík væri sterkustu liðin, jafnvel þótt hin liðin hefðu Kana innan sinna raða. Ívar vildi gera heiðursmannasamkomulag við Keflavík þess eðlis að bæði félögin hétu því að taka ekki Kana.
Heimasíðan: En Ívar segir í Mogganum að þið hafið ekki svarað og hann því ekkert vitað?
Hrannar: Ég sagði Ívari að ég væri persónulega hlyntur þessu og teldi fullvíst að við myndum ganga að þessu samkomulagi. Síðan liðu að vísu nokkrir dagar því ég vildi ekki taka þessa ákvörðun einn og kvennráðið fór yfir málið. Um viku síðar kom ég að máli við Ívar og sagði honum "já". Við vildum gera svona samkomulag og ég sagði jafnframt að hann gæti gengið að því vísu að við myndum ekki fá okkur Kana. Þetta er í mínum huga ansi afdráttarlaust samkomulag. En kannski þarf þinglýstan, undirritaðan og vottaðan samning til að Ívar viðurkenni að um samkomulag sé að ræða, ég veit það ekki.
Heimasíðan: En svo fá þær sér Kana.
Hrannar: Ívar sagði mér að Medow myndi leika með þeim einn leik vegna þess að hún væri hér í jólafríi. Hann sagði hins vegar að þau hefðu ekki í hyggju að fá sér Kana. Ég skil Ívar ekki. Hann hringir í mig og lýsir því yfir í hálftíma spjalli hversu mikið rugl það sé að fá Kana og svo snýr hann sér við og fær sér einn, um leið og hann veit að við ætlum ekki að gera það. Mér finnst þetta frekar ómerkileg vinnubrögð.
Heimasíðan: En hvað getið þið gert?
Hrannar: Við trúum því, þrátt fyrir allt að nýráðinn landsliðsþjálfari standi við orð sín og láti íslensku stúlkurnar duga. Ef hann gerir það ekki, þá hann um það. Hann mun þá sjá eftir því.
Heimasíðan: Hvað meinar þú með því?
Hrannar: Nú, ég held bara að það myndi efla Keflavíkurliðið verulega ef það kæmi í ljós að hann treysti ekki sínum ÍS-stúlkum í slaginn án utankomandi aðstoðar eftir allt það sem hann hefur sagt um hve góðar þær eru. Það gæti líka orðið hálf neyðarlegt fyrir landsliðsþjálfarann að ganga á bak orða sinna, fá sér Kana þrátt fyrir að tala um hve mikil vitleysa það sé og tapa samt. Veit ekki hvort hann tekur sénsinn á því. Einnig myndi hann ekki baka sér mikilla vinsælda hjá Keflavík sem er með öflugustu kvennastarfsemina á Íslandi og flesta leikmenn í landsliðshópnum.
Heimasíðan þakkar Hrannari fyrir spjallið og vonast eftir miklu fjöri í kvennakörfunni í vetur, með eða án Kana.