Jackson Jordan leikur með Keflavík í kvöld
Vegna orðróms sem upp er kominn taldi heimasíðan rétt að greina frá því að kominn er nýr leikmaður til liðsins, Jackson Jordan að nafni. Þjáfarar go stjórn töldu, eftir að hafa skoðað vídeó af Snæfellsliðinu, að við myndum ekki eiga séns nema bæta við okkur þriðja Kananum, ekki síst eftir að Arnar Freyr og Sverrir Þór lögðust í flensu eftir síðasta leik gegn Grindavík.
Jackson mun komast fyrir undir launaþakið, þó gera verði nokkrar breytingar fyrst. Núna er sendinefnd frá Keflavík að semja við leikmenn um breytingar og launalækkun til að Jackson komist undir þakið. Reiknað er með að þau mál verði öll afgreidd fyrir hádegi. Jackson hefur þegar fengið dvalar og atvinnuleyfi og er með leikheimild frá Rússlandi sem gildir hér.
Brugðist var skjótt við eftir veikindi okkar bakvarða og Jackson var þegar klár í slaginn. Hann kemur beint frá Rússlandi þar sem hann lék í efstu deild með Dynamo Moskvu við góðan orðstír, skoraði 33 stig í leik. Jackson var um tíma í Duke háskólanum í Bandaríkjunum, og þótti eitt mesta efni sem fram hefur komið. Hann varð þó að yfirgefa skólann vegna brota á reglum um ólöglega notkun bannaðra efna. Hann segir þau mál öll úr sögunni núna.
Jackson var reyndar látinn fara frá Moskvu vegna agabrota, en hann réðst á dómara í leik um daginn og sló hann niður. Eftir það var honum vikið frá félaginu. Jackson segist hafa verið hafður fyrir rangri sök, hann hefði einfaldlega rekist í dómarann. Hann viðurkennir þó að vera skapbráður, en segist ekki munu leggja hendur á dómara á Íslandi. Hann hefur áður komið til landsins og hlakkar til að spila hér.
Jackson Jordan er bróðursonur Michael Jordan og þykir um margt minna á frænda sinn. Sérstaklega hefur hann svipaðan stökkkraft og Jordan hafði á yngri árum, og hefur unnið margar troðkeppnir, nú síðast í Moskvu þar sem hann hoppaði yfir hest og tróð síðan aftur fyrir sig. Jordan þykir alhliða leikmaður og getur leikið allar stöður. Hann er mikil skytta og setti t.d. met í Argentínu fyrir þremur árum þegar hann skoraði 18 þrista í einum leik.
Jackson mætti á aukaæfingu í morgun þar sem farið var yfir kerfin. Hann var fljótur að átta sig á leik liðsins og sagðist vera klár í slaginn. Hann vildi þó að þjálfararnir bættu við tveimur kerfum fyrir sig, einu skotkerfi og einu troðkerfi. Falur og Guðjón sögðust ætla að skoða málin og hver veit nema nýjungar sjáist á vellinum í kvöld.
Við bjóðum kappann velkominn og vitum að hann á eftir að styðja okkur á baráttunni gegn Snæfelli.