Jason Kalsow skrifar undir hjá Keflavík
Jason Kalsow, 201 cm. framherji skrifaði undir hjá Keflavík í dag. Jason kemur frá Wisconsin-Stewens háskólanum í Bandaríkjunum, sem spilar í 3 deild ( NCAA div 3) þar í landi. Wisconsin háskólinn hefur orðið meistari síðustu 2 árin í sinni deild. Jason var kosinn besti leikmaður deildarinnar á síðasta ári sínu, var með 19 stig að meðaltali, 7 fráköst og 4.5 stoðsendingar í leik. Jason þykir fjölhæfur leikmaður og duglegur og á örugglega eftir að nýtast okkur vel í vetur.
Hér_er_hægt_að lesa um þegar Wincosin-Stewens varð meistari.
Jason Kalsow þykir fjölhæfur og duglegur leikmaður.
Skemmtileg mynd af fagnaðarlátunum. Jason tekinn heljartökum.