Fréttir

Körfubolti | 10. desember 2003

Jason Rowe er meiddur og leikur líklega ekki í kvöld

Frakkarnir komu til landsins seint í gærkvöldi. Með þeim var fríður hópur styrktaraðila sem félagið bauð með í ferðina, alls um 15 manns. Það má því segja að þátttaka Keflavíkur í keppninni efli ferðamannabransann í bænum :)

En aðalfréttin við komuna var að bakvörðurinn eldsnöggi, Jason Rowe, er meiddur á hné og mun að eigin sögn ekki leika með í kvöld. Hann er tognaður og þarf hvíld til að jafna sig.

Frakkarnir ætla annars að taka því rólega í dag, fara á æfingu í hádeginu og hvíla sig svo fyrir leikinn. Gestir þeirra taka rúntinn til Reykjavíkur og síðan ætlar allur hópurinn í Bláa Lónið á morgun áður en haldið er heim á leið á ný.