Fréttir

Karfa: Karlar | 10. janúar 2010

Jómfrúar-leikur Burns í kvöld

Draelon Burns mun leika sinn jómfrúar-leik með Keflavík í kvöld, en þá fara strákarnir í Kópavog og mæta Breiðablik. Það verður gaman að sjá hvernig þessi nýji erlendi leikmaður mun plumma sig, en allir sannir stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og styðja við bakið á strákunum. Þeir eiga svo tvo erfiða leiki fyrir höndum á næstu dögum, en þeir mæta Stjörnunni í Keflavík þann 15. janúar og svo Njarðvík í Subway-bikarkeppninni þann 18. janúar.


Áfram Keflavík!