Fréttir

Körfubolti | 4. nóvember 2004

Jon Louis Borg, þjálfari Toulon, var búinn að vara Reims við Keflavík

Vefstjóri var að ráfa um netheima þegar hann rakst á viðtal í frönskum miðli frá Reims. Þar voru Frakkarnir að velta fyrir sér möguleikum Reims í Evrópukeppninni og voru m.a. að spá í Keflavík. Þeir hringdu í Jon Louis Borg, þjálfara Hyeres-Toulon sem kom hingað fyrir um ári síðan og tapaði, og spurðu hann um íslenska liðið.

Hann sagði að Keflvíkingarnir væru ekki stórir, en að þeir væru afar aggressífir, bæði í vörn og sókn. Hann sagði enn fremur að leikmennirnir væru öðruvísi en í Frakklandi þar sem sami maðurinn gæti oft leikið tvist, þrist og fjarka (þ.e. bakvörð og lítinn eða stóran framherja). Enn fremur sagði hann að Keflvíkingarnir væri tæknilega góðir og gætu komið á óvart með langskotum, jafnvel vel fyrir aftan þriggja stiga línuna. Hann lauk viðtalinu með því að segja að Reims myndi ekki eiga auðveldan leik fyrir höndum, "it is not going to be an easy win over there" sagði þjálfarinn og vissi greinilega hvað hann söng.

Það er því ekki hægt að segja að Reimsverjar hafi ekki verið varaðir við . . .