Fréttir

Körfubolti | 2. desember 2002

Jón N Hafsteinsson er meiddur á hné

Eins og glöggir áhorfendur tóku eftir s.l. föstudag lék Jón N Hafsteinsson (Jonni) ekki með félagi sínu gegn KR. Ástæðan er sú að Jonni meiddi sig á hné á æfingu í vikunni. Ekki er ljóst á þessari stundu hve alvarleg meiðslin eru, þar sem um gæti verið að ræða meiðsl á liðþófa og/eða liðböndum. Næstu dagar munu leiða meira í ljós um þetta.

Jonni verður frá æfingum og keppni í einhvern tíma, við vonum að það verði ekki meira en 2-3 vikur.

Sjá tölur frá ferli Jonna.