Fréttir

Körfubolti | 22. október 2003

Jón N Hafsteinsson í eins leiks bann

Í leik okkar gegn ÍR um daginn fékk Jón N Hafsteinsson (Jonni) tvær tæknivillur og var honum því vísað úr húsi. Dómari leiksins, og kærandi, Rögnvaldur Hreiðarson kærði Jonna fyrir óprúðmannlega framkomu með þessum orðum: "Leikmaðurinn fékk tæknivillu fyrir mótmæli. Hann lét sér ekki segjast og fékk aðra og var vísað úr húsi."

Í samræmi við agareglur KKÍ var úrskurðað í málefnum Jonna í gær, þriðjudag, með eftirfarandi hætti: "Aganefnd KKÍ hefur tekið fyrir neðangreinda kæru og úrskurðað leikmanninn í eins leiks bann." Bannið tekur gildi frá og hádegi föstudaginn 24. október og verður Jonni því í banni í næsta heimalik, sem er gegn Breiðabliki á föstudaginn.