Jón Nordal Hafsteinsson og Þröstur Leó Jóhannsson ásamt 5. öðrum leikmönnum skrifa undir
Jón Norðdal Hafsteinsson og Þröstur Leó Jóhannson skrifuðu undir nýjan samning við Keflavík í kvöld. Jonni sem er landliðsmaður var kosin besti leikmaður liðsins í vetur enda átti hann mjög gott tímabil. Sérstaklega byrjaði hann veturinn vel og átti einnig stóran þátt í glæsilegum endaspretti liðsins þar sem liðið hampaði Íslandsbikarnum. Þröstur sem er 19. ára átti sitt besta tímabil og hefur verið að vaxa mjög mikið sem leikmaður og á eftir að spila enn stæra hlutverk næsta vetur. Þröstur var valin nú um daginn í landsliðshópinn í fyrsta skipti
Gunnar Einarsson sem var kosin besti leikmaður úrslitakeppninar mun leika með Keflavík ef hann ákveður að halda áfram. Gunnar er ungur enn og verðum við stuðningsmenn liðsins að vona að hann ákveði að halda áfram nokkur ár í viðbót. Þess má geta að Gunni hefur allan sinn feril spilað fyrir Keflavík og fáir körfuknattleiksmenn hafa verið eins sigursælir og hann.
Þeir sem skrifðuðu undir samning í kvöld ásamt Jonna og Þresti voru þeir Elvar Sigurjónsson, Vilhjálmur Steinarsson og Axel Margeirsson ásamt unglingalandsliðsmönnunum. Sigfúsi Árnasyni og Guðmundi Gunnarssyni. Allt framtíðarmenn liðsins sem við eigum eftir að sjá mikið af á næstu árum.
Ísafjarðartröllið Siguður Gunnar Þorsteinsson verður áfram í Keflavík enda var hann með samning við liðið.