Fréttir

Körfubolti | 17. september 2004

Jonni er spenntur fyrir landsleiknum á sunnudaginn

Heimasíðan hringdi í Jón N. Hafsteinsson (Jonna), en hann er einn af þremur landsliðsmönnum Keflavíkur sem leika gegn Rúmeníu á sunnudaginn. Jonni var í vinnunni en gaf sér tíma í örstutt spjall:

Jonni, hvernig líður þér fyrir leikinn á sunnudaginn?

Ég er mjög spenntur og hlakka mikið til. Við erum búnir að bíða eftir þessum leik og viljum endilega vinna eftir tapleikinn um daginn. Það verður líf og fjör á sunnudaginn.

Hvernig finnst þér hafa gengið í sumar hjá landsliðinu?

Við erum búnir að æfa mjög vel og erum í fínu formi. Æfingaleikirnir hafa margir verið góðir og okkur gekk ágætlega í Ungverjalandi á móti sterkum liðum. Mér fannst við hafa verið óheppnir á móti Dönum, við hefðum vel getað unnið þann leik.

Vitið þið eitthvað um næstu andstæðinga ykkar, Rúmena?

Nei, vitum lítið nema að styrkurinn ætti að vera sá sami og hjá okkur og Dönum. Eru með stóran góðan mann en við erum ekkert búnir að fara yfir það ennþá.

Hvernig er að fá Jón Arnór inn í liðið?

Það er frábært, hann er búinn að spila svaka vel með rússnesska liðinu og vonandi nær hann góðum leik á sunnudaginn, því hann er magnaður leikmaður.

Hvernig hefur þú fundið þig með landsliðinu?

Bera vel, það hefur gengið sæmilega og mér líður vel í þessum hópi. Leikirnir eru spennandi og maður lærir mikið.

Jæja Jonni, takk fyrir stutt spjall, en rétt í lokin, hvernig heldur þú að leikurinn fari á morgun?

Ég held að við vinnum með 8 stigum í hörkuleik.

Vonum það . . .