Fréttir

Körfubolti | 2. október 2004

Jonni tognaði aftan í læri

Jón N Hafsteinsson (Jonni) hefur verið í svaka formi upp á síðkastið, bæði með landsliðinu og með Keflavík. Má telja öruggt að hann hafi aldrei áður verið jafn góður og nú. Búast menn við góðum vetri hjá Jonna, ef hann verður heill, en meiðsli hafa stundum sett strik í reikninginn hjá drengnum. Á æfingu á fimmtudaginn varð Jonni fyrir því óhappi að togna aftan á læri með þeim afleiðingum að hann varð að hætta og hvíla sig. Ekki er ljóst á þessari stundu hve mikinn tíma hann þarf til að jafna sig, það gætu verið nokkrir dagar eða tvær vikur. Eins og staðan er núna er óvíst með þátttöku Jonna í Meistarakeppninni á morgun, við sjáum til.