Kalli Bjarni Idol-stjarna skemmtir Bikargestum
Það er við hæfi á sjálfum Bikarúrslitaleik KKÍ & Lýsingar að skarta skærustu stjörnunum. Því hefur Kalli Bjarna, sjóarinn syngjandi frá Grindavík, sá hinn sami og sigraði í Idol Stjörnuleit á dögunum, verið fenginn til að syngja nokkur lög fyrir áhorfendur og hita mannskapinn upp. Kalli mun hefja upp raust sína um kl. 16.10 og taka tvö eða þrjú lög. Það er því ærin ástæða fyrir áhorfendur að mæta snemma til leiks og koma sér í gott stuð. Auðvitað mælum við með því að Keflvíkingar fari á báða leikina, enda mikið í húfi. Fólk getur fengið sér pásu milli leikjanna en svo er um að gera að tjútta aðeins með Kalla fyrir karlaleikinn.