Fréttir

Körfubolti | 9. október 2004

Kanarnir í Keflavík - 29 karlar og 8 konur til þessa!

Alls hafa 29 erlendir leikmenn leikið með mfl. karla hjá Keflavík frá 1979. Sá fyrsti sem kom hét Jeff Welshans og þótti hann mikill töframaður á sínum tíma. Hann komst reyndar í kast við lögin og átti ekki langan feril hjá félaginu. Sá besti á fyrri árum var Tim Higgins sem var svaka player. Hann skoraði 33 stig að meðaltali og hann leiddi liðið upp í úrvalsdeild 1982 og var liðið taplaust allt þar til þessi ágæti maður stakk af og kom aldrei aftur! Frá 1983 til 1989 voru Kanar bannaðir en eftir að þeir voru leyfðir aftur hafa nokkrir afburða leikmenn leikið hjá félaginu. Damon og Bow hafa átt farsælustu ferlana og tekið þátt í mörgum glæstum sigrum. Auk þeirra voru nokkrir afar öflugir, svo sem Derrick Allen (sem er öllum í fersku minni), Calvin Davis og Ed Saunders. En hér er listinn:

  1. Damon Johnson 199 leikir, 1996-97, 1998-99, 2001-02, 2002-03
  2. Jonathan James Bow 133 leikir, 1991-92, 1992-93, 1993-94*
  3. Davíð Alan Grissom 101 leikir, 1994-95, 1996-97, 1998-99
  4. Lenear Burns 96 leikir, 1994-95, 1995-96
  5. Nick Bradford 57 leikir, 2003-04
  6. Derrick Allen 57 leikir, 2003-04
  7. Calvin Davis 50 leikir, 2000-01
  8. Sandy James Anderson 33 leikir, 1989-90
  9. Chianti Roberts 30 leikir, 1999-2000*
  10. Kevin Grandberg 29 leikir, 2002-03*
  11. Thomas Lytle 26 leikir, 1990-91*
  12. Dana Dingle 25 leikir, 1997-98*
  13. Edmund Saunders 22 leikir, 2002-03
  14. Tim Higgins 21 leikur, 1981-82, 1982-83*
  15. Terry Reed 21 leikur, 1980-81
  16. Brad Miley 17 leikir, 1982-83
  17. Dwight Stewart 16 leikir, 1995-96
  18. Tyrone Thornton 15 leikir, 1990-91
  19. Maurice Spillers 11 leikir, 1997-98
  20. John Vergason 10 leikir, 1989-90*
  21. Raymond Foster 10 leikir, 1993-94
  22. Jason Smith 8 leikir, 1999-2000
  23. Monnie Ostrom 7 leikir, 1979-80
  24. Chris Cameron 5 leikir, 1999-2000*
  25. Jeff Welshans 3 leikir, 1979-80*
  26. Mike Brown 3 leikir, 1993-94
  27. Glover Jackson 3 leikir, 1999-2000
  28. Anthony Glover, nýliði, 2003-04
  29. Jimmy Miggins 7 leikir, 2003-04*

* þýðir að leikmaður hafi ekki klárað viðkomandi leiktíð

Kanar kvenna

Konurnar hafa verið rólegri í þessum málum en samt hafa komið hingað átta stúlkur til að leika körfubolta.

  1. Sonia Ortega, 33 leikir, 2002-04
  2. Veronica Cook, 19 leikir, 1995-96
  3. Jennifer Boucek, 17 leikir, 1999-2000
  4. Tonya Sampson, 13 leikir, 1998-99
  5. Brooke Schwartz, 13 leikir, 2000-01
  6. Christy Cogley, 7 leikir, 1999-2000
  7. Valorin Lyles, 1 leikur, 1990-91
  8. Reshea Bristol, nýliði, 2004-05