Fréttir

Körfubolti | 23. júní 2004

Karfan á Landsmót

Karfan sendir lið á Landsmótið á Sauðárkróki. Liðið er skipað eldri, núverandi og verðandi leikmönnum Keflavíkur. Flestir leikmanna hafa verið að æfa stöðugt frá því síðasta tímabili lauk og stefnum við að sjálfsögðu á að vinna mótið og koma heim með enn einn bikarinn. Ekki hefur enn verið tekin upp keppni í körfuknattleik kvenna á mótinu, en heimasíðunni skilst að Keflavík sendi kvennalið í handboltann, sem leikinn er utanhúss, og þar eigi körfumenn liðtækar kvensur.