Karfan með rjómakökukast á ljósanótt
Meistaraflokkarnir verða með sölubás við Kóda á ljósanótt. Þar verða meðal annas seldar pulsur, neonljós, gos, sælgæti og fl. Strákarnir verða líka með bás þar sem hægt er kaupa rjómaköku á vægu verði og henda í þekkta Reyknesbæinga. Þeir sem þurfa að þola rjómakökukastið eru m.a Árni Sigfússon bæjarstjóri, Stefán Bjarkarson og fl. góðir. Allt er þetta gert til að fjármagna Evrópukeppnina í ár og æfingaferð hjá stelpunum nú í haust. Svo það er um að gera að muna eftir sölubásnum við Kóda á ljósanótt og styrkja körfuna í Keflavík.