Fréttir

Karla- og kvennaliðið leika í kvöld í Lengjubikarnum - Stórleikur í TM-Höllinni
Karfa: Konur | 18. september 2013

Karla- og kvennaliðið leika í kvöld í Lengjubikarnum - Stórleikur í TM-Höllinni

Karla- og kvennalið Keflavíkur eiga bæði leik í kvöld í Lengjubikarnum. Stúlkurnar halda til Garðabæjar þar sem þær mæta 1. deildarliði Stjörnunnar. Í TM-Höllinni er svo stórleikur milli Keflavíkur og Grindavíkur hjá körlunum en báðir leikirnir hefjast kl. 19.15.

Aðgangseyrir í TM-Höllina í kvöld er 1500 kr. Þá verða stjórnarmenn Keflavíkur með borð við innganginn þar sem hægt verður að skrá sig í stuðningsmannaklúbbinn Hraðlestina (sjá /media/6/hradlestinn.jpg) auk þess sem árskortin í efri stúku verða til sölu en þau mun einnig verða hægt að fá hjá leikmönnum karla- og kvennaliðsins.