Karlarnir komnir í 4-liða úrslit Powerade bikar
Keflavíkurdrengirnir tryggðu sér í gær sæti í 4-liða úrslitum Powerade bikarkeppninnar í gær, en þeir lögðu Fjölnismenn að velli á heimavelli þeirra síðarnefndu. Lokatölur leiksins urðu 83-102 fyrir Keflavík og voru Keflvíkingar aldrei með sigurinn í hættu. Þeir náðu ávallt að halda 10-20 stiga forskoti og voru ekki á því að láta það frá sér.
Jarryd Cole átti flottan leik fyrir Keflavík og skoraði 35 stig, ásamt því að hirða 13 fráköst. Charles Parker skoraði 17 stig og hirti 10 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson með 15 og Halldór Örn Halldórsson 13.
Þá er ljóst að Keflvíkingar eru búnir að tryggja sér sæti í 4-liða úrslitum ásamt Tindastól og KFÍ. Í kvöld mætast svo KR og Snæfell og mun það því skýrast eftir þann leik hvaða 4 lið verða í pottinum þegar kemur að næsta drætti.