Fréttir

Körfubolti | 26. september 2004

Kef 51 - Kouvot 49, 2ja stiga forysta í hálfleik . . . Meira um leikinn hér

Heimasíðan ræddi stuttlega við fararstjórann og stjórnarmanninn Sigga B í hálfleik.

Leikurinn er hraður og jafn, við virkum ferskari, þótt Finnarnir séu líkamlega sterkari. Þeir virka þreyttari, enda keyrum við á fleiri leikmönnum og höfum gert allt mótið. Í fyrri hálfleik hafa allir komið við sögu nema Sverrir Þór og Sævar.

Engin villuvandræði eru hjá liðunum. Jonni, Arnar og Maggi hafa átt mjög fína spretti og eins hefur Glover verið góður. Miggins rólegur.

Annars á Siggi erfitt með að fygljast mjög vel með gangi mála þar sem hann er að taka leikinn upp á vídeó vél og þar að auki senda sms til hálfrar Keflavíkur :)

Vonandi náum við að fylgja góðum fyrri hálfleik eftir á fullum krafti.