KEF-KARLAR: Auðveldur heimasigur gegn Hamri, 113-74
Það var engu líkara en að Hamarsmenn hefðu fengið “Reykjanesbrautarveikina” á leiðinni til Keflavíkur í gær, því augljóst var að þeir gerðu sér engar vonir um að standa í heimamönnum. Enda var leikurinn eign Keflvíkinga frá upphafi og þeir virtust geta skorað að vild
3ja stig skotin voru fyrirferðamikil í leiknum enda voru leikmenn Keflavíkur nánast í opnum skotfærum allan tímann. Gaui smellti fjórum þristum og setti alls 21 stig, en auk hans voru Gunnararnir tveir (Einarsson og Stefánsson) með þrjú stykki hvor og Maggi, Damon, Falur, Davíð og Edmund létu ekki sitt eftir liggja og skoruðu allir 3ja stiga körfur.
Eins voru troðslur áberandi, Edmund (18 stig) átti nokkrar og þar af eina sérstaklega flotta í fyrri hálfleik. Damon sem skoraði 21 stig skoraði þegar honum sýndist og átti nokkur snotur gegnumbrot. Leikgleiðin var í fyrirrúmi og gaman er að sjá til Edmunds, hann brosir og gantast allan leikinn þegar sá gállinn er á honum. Sigurinn var auðveldur, þrátt fyrir að liðið hafi leikið á hálfum hraða megin hluta seinni hálfleiks. Tuttugu stiga hálfleiksforskotið hafði haldist nánast óbreytt í 14 mínútur. En á síðustu mínútunum settu drengirnir í fluggírinn, pressuðu stíft með Sverri Þór í fararbroddi og juku forskotið úr 20 stigum í tæp 40 með fjölmörgum hraðupphlaupum.
Hamarsmenn ullu vonbrigðum, sigurviljinn var lítill og baráttuþrekið takmarkað. Meira að segja gamlir baráttuhundar eins og Pétur Ingvarsson og Keith Vassel voru hljóðir og létu lítið fyrir sér fara. Ljóst er að Hvergerðingar þurfa að spýta ærlega í lófana ef þeir ætla sér að vinna einhverja leiki í lokabaráttu Intersportdeildarinnar.
Fyrir okkar menn var þessi leikur vart meira en létt æfing. Nú er hins vegar komið að alvörunni, því á laugardaginn leikur Keflavík bikarúrslitaleik í fyrsta sinn síðan 1999 og á möguleika að verða Bikarmeistari karla í fjórða skiptið eftir sigra árin 1993, 1994 og 1997.