Fréttir

Körfubolti | 19. febrúar 2003

KEF-KARLAR: Fjórar umferðir eftir – leikur gegn KR á morgun

Nú eru fjórar umferðir eftir í Intersport-deildinni og spennan í hámarki. Grindvíkingar eru í efsta sætinu með 30 stig og ef þeir gera engin mistök verður Deildarmeistaratitillinn þeirra. Auk Grindavíkur á aðeins KR (28 stig) raunhæfa möguleika á efsta sætinu, en til að svo megi vera þurfa þeir að vinna rest og Grindavík að tapa einum leik. En við Keflvíkingingar (26) erum líka við toppinn, þó efsta sætið sé úr sjónmáli. Við eigum þó möguleika á öðru sætinu og er það algerlega í okkar höndum. Ef við vinnum þá fjóra leiki sem eftir eru, er annað sætið okkar. Kíkjum á leikina sem eftir eru:

  • Fim. 20. feb. KR – KEF
  • Fim. 27. feb. KEF – ÍR
  • Sun. 2. mar. BREI – KEF
  • Fim. 6. mar. KEF – SNÆ

Haukarnir (24) eiga möguleika á 4ða sætinu með sigrum í sínum leikjum, og einnig möguleika á 3ja sætinu en til þess þyrfti Keflavík að tapa tveimur vegna innbyrðis viðureigna. Allt getur gerst! Samt er 4ða sætið ekki öruggt hjá Haukum því Tindastóll (20) sækir hart að þeim og getur náð 4ða sætinu með sigri á Haukum í næstu umferð og einu Haukatapi til viðbótar. Njarðvík (20) er einnig í þessari baráttu en lendir líklega í 5., eða 6. sætinu fyrir rest, vongóðir fyrir úrslitakeppnina með nýjan Kana.

ÍR (18) tilheyrir einnig þessum hópi og getur gert sér vonir um 5. eða 6. sætið, þó líklegt verði að telja að þeir hafni í því 7., þó kannski sé fullsnemmt um slíkt að spá. Þar á eftir koma Snæfell (14) og Breiðablik (14) en þau félög heyja nú hatramma baráttu um síðasta sætið inn í úrslitin. Hamar (10) virðist sigla á nokkuð auðum sjó og ýmislegt merkilegt þarf að gerast til að forða Skallagrími (4) og/eða Val (4) frá falli. Við reiknum reyndar með að lokastaða deildarinnar verði frekar lík núverandi stöðu, nema hvað við vonumst eftir sætaskiptum við KR-inga.

Það sem okkur snertir mest er næsti leikur – gegn KR. Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða, enda tóku KR-ingar Grindavík í bakaríið um daginn. Okkar menn hafa unnið KR í tvígang í vetur, en KR hefur sótt í sig veðrið á seinni hlutanum, ekki síst vegna endurkomu Herberts og bættrar frammistöðu Óðins og Baldurs. Darryl þeirra Flake er einnig stórgóður leikmaður og virðist nánast óstöðvandi inní teig. En KR-ingar eru veikir í bakvarðarstöðunni og kannski tekst okkur að nýta þann veikleika, auk þess sem Ed ætti að geta gert Darryl lífið erfitt undir körfunni. Leikurinn á fimmtudaginn er alger úrslitaleikur um 2. sæti deildarinnar en það er mikilvægt sæti sem tryggir heimaleikjarétt í tveimur fyrstu umferðum úrslitakeppninnar, svo fremi sem menn komast í gegnum þá fyrstu!