KEF-KARLAR: Góður sigur á Borgarnesi eftir frábæran endasprett frá Damon
Þeir sem heima sátu og fylgdust með textavarpinu voru ekki vongóðir þegar í ljós kom að staðan var 72-57 fyrir Skallagrími í byrjun seinni hálfleiks. Og staðan átti eftir að versna, því heimamenn komust 20 stigum yfir í leik sem einkenndist af góðri hittni Skallana og slökum varnarleik Keflvíkinga framan af.
En það er ekki tilviljun að Damon Johnson er yfirleitt talinn besti leikmaðurinn sem leikið hefur á Íslandi, þótt mörgum hafi fundist hann frekar rólegur það sem af er þessari leiktíð. Hann setti í fluggírinn á lokasprettinum og leiddi sína menn til sigurs í 25 stiga viðsnúningi með frábærum leik. Drengurinn setti 42 stig og afgreiddi Skallana sem voru lengst af líklegir til að leggja Keflavík í gærkvöldi, eina ferðina enn.
Það er annars merkilegt hversu illa Keflavík hefur gengið í Borgarnesi á undanförnum árum, því oftar en ekki hefur getan verið okkar megin. En Skallarnir eru baráttuglaðir og leggja sig fram. Auk þess hafa þeir styrkt lið sitt verulega upp á síðkastið með nýjum Kana og júgóslavneskum bræðrum.
Því voru það afskaplega gleðileg tíðindi að okkar menn hysjuðu upp um sig brækurnar og lönduðu sigri í Borgarnesi. Liðið sýndi enn og aftur að það er aldrei sterkara en á lokasprettinum og er það gott veganesti fyrir framhaldið.
Auk Damons var Ed ágætur, setti 18 stig og hirti 11 fráköst. Bakverðirnir okkar voru hins vegar ekki á skotskónum í leiknum og hittu aðeins úr 3 af 21 3ja stiga skoti sem er ótrúlega dapurt. Gunnar Stefánsson og Arnar Freyr áttu þó ágætis spretti í leiknum. Falur Harðarson hvíldi í gær sökum eymsla í hné, en hann ætti að vera klár í næsta leik.
Snæfellingar, andstæðingar okkar í Bikarúrslitunum, sýndu einnig styrk sinn er þeir lögðu KR-inga með fáheyrðum yfirburðum, og er það góðs viti fyrir spennandi úrslitaleik. En áður en að því kemur er heimaleikur í deildinni á mánudaginn gegn Hamri. Það er síðasta törnin fyrir Bikarinn og mikilvægt að nýta þann leik vel til að koma sér í gírinn fyrir laugardaginn.