Fréttir

Körfubolti | 13. mars 2003

KEF-KARLAR hefja úrslitakeppnina á morgun, föstudag, gegn ÍR

Eins og áhugamönnum um körfubolta ætti að vera ljóst, þá hefst úrslitakeppnin í kvöld með viðureignunum Grindavík – Hamar og KR – Njarðvík. Við spáðum Suðurnesjamönnum velgengni í pistli í gær, en annað kvöld hefja okkar menn leik gegn vöskum Breiðhyltingum.

ÍR er eitt af aðeins þremur félögum sem unnið hafa Keflavík í vetur (hin tvö eru jú Njarðvík og Grindavík). Það gerðist í Seljaskóla skömmu fyrir jól og átti Eugene Christopher stórleik og fór illa með okkar menn sem voru arfaslakir í það skiptið.

En töluvert vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og m.a. hafa ÍR-ingar tvisvar komið í heimsókn á Sunnubrautina og jafnoft hefur Keflavík unnið öruggan sigur. Enda eru all margir á þeirri skoðun að Keflavíkurliðið eigi að bera sigurorð af ÍR í fjórðungsúrslitunum. En ekkert er öruggt í þessum heimi og því skulum við aðeins kíkja á andstæðinga okkar.

ÍR hefur á að skipa ungu og spræku liði sem farið getur geyst í kringum körfurnar. Strákar eins og Sigurður og Ómar eru öflugir frákastarar og geta einnig skorað vel á góðum degi. En föstu punktarnir í ÍR liðinu eru Eiríkur Önundarson og Christopher sem standa yfirleitt fyrir sínu. Galli ÍR liðsins er kannski helst óstöðugleiki, því margir leikmenn eru enn “ungir og efnilegir” og eiga erfitt með að leika vel og skipulega leik eftir leik. Hungrið og baráttan er til staðar en getan rokkar töluvert upp og niður.
Keflavíkurliðið passar ágætlega gegn ÍR, nema hvað stundum hefur á því borið að okkar menn sinni frákastahlutverkinu ekki af nægjanlegri kappsemi. Þegar svo ber undir geta ÍR piltar haldið sér inní leiknum, enda hávaxnari í mörgum stöðum. En gegn alvöru Keflavíkurvörn munu ÍRingar eiga erfitt með að komast í góð skorfæri, jafnvel þótt að bakverðirnir ættu að geta staðist pressu okkar manna ágætlega, að minnsta kosti framan af leik.

Heimasíðan telur að fráköstin geti orðið lykillinn að úrslitunum annað kvöld. Ef okkar menn eru klárir í þann slag ætti sigurinn að geta orðið öruggur, en ef menn slá slöku við mun leikurinn verða spennandi. Við vonum síðan bara að áhorfendur fjölmenni, því Keflavíkurhraðlestin mun eflaust leggja allt sitt af mörkum til að skemmta þeim – ÁFRAM KEFLAVÍK!